Safn: Beisli

Hundabeisli fyrir hunda af öllum stærðum og fyrir mismunandi þarfir. Hér finnur þú klassísk H-beisli með góðum stillimöguleikum, létt step-in beisli sem fara ekki yfir höfuð hundsins og henta sérstaklega vel fyrir litla hunda, ásamt sterkbyggðari sporting beislum.

Sporting beislin eru með festingu bæði á baki og framan á bringu og því hægt að nota þau sem no-pull beisli fyrir hunda sem toga í taum. Einnig finnur þú bílbeisli og bílbelti fyrir öruggari ferðalög með hundinn.