Skilmálar Dýraloppunnar

Dýraloppan – Skilmálar umboðssölu

Velkomin í Dýraloppuna ♻️
Dýraloppan er hringrásarverkefni fyrir vel með farnar gæludýravörur sem fá nýtt heimili og annað líf í gegnum umboðssölu hjá okkur.

1. Almennar upplýsingar

Dýraloppan tekur við völdum gæludýravörum í umboðssölu.
Við sjáum um móttöku, yfirferð, framsetningu og sölu vörunnar.

Við áskiljum okkur rétt til að hafna vörum sem uppfylla ekki kröfur okkar um:
- hreinlæti
- ástand
- öryggi
- gæði
- virkni eða söluvænleika

2. Hvaða vörur eru teknar í sölu

Við tökum fyrst og fremst við:
- beislum
- ólum og taumum
- ferðabúrum
- grindum
- fatnaði fyrir gæludýr
- skálum
- burstum og snyrtivörum
- klórustaurum
- öðrum vel með förnum aukahlutum fyrir gæludýr

Allar vörur þurfa að vera:
- hreinar
- lyktarlausar
- vel með farnar
- tilbúnar til sölu

3. Vörur sem við tökum ekki við

Við tökum ekki við:
- matvælum eða nammi
- lyfjum eða bætiefnum
- sleikimottum
- tyggivörum
- leikföngum sem fara reglulega í munn dýra
- vörum sem erfitt er að hreinsa eða sótthreinsa
- vörum með miklu sliti, blettum eða lykt
- brotnum eða óöruggum vörum

Dýraloppan áskilur sér rétt til að fjarlægja vöru úr sölu hvenær sem er ef í ljós kemur að hún uppfyllir ekki kröfur um öryggi, hreinlæti eða gæði.

4. Verðlagning

Seljandi ákveður sjálfur söluverð vörunnar.

Við getum þó ráðlagt um verðlagningu ef óskað er eftir því.

5. Skráningargjald og þóknun

Greitt er skráningargjald fyrir hverja vöru sem tekin er í sölu:

- 690 kr. per vöru

Skráningargjaldið er óendurkræft og innifelur:
- móttöku
- yfirferð
- skráningu
- framsetningu
- geymslu
- allt að 4 vikur í sölu

Dýraloppan tekur einnig:
- 30% þóknun af söluverði seldra vara

Seljandi fær því greidd 70% af söluverði.

6. Sölutímabil

Vörur eru í sölu í allt að 4 vikur frá skráningu.

7. Framlenging sölutíma

Óski seljandi eftir að halda vöru áfram í sölu eftir 4 vikur greiðist:

- 990 kr. fyrir 2 vikna framlengingu

Framlenging þarf að vera staðfest áður en upprunalegu sölutímabili lýkur.

8. Að loknu sölutímabili

Þegar sölutímabili lýkur getur seljandi valið um að:

- sækja óseldar vörur
- framlengja sölutíma gegn gjaldi
- leyfa vörunum að halda áfram í sölu þar sem framtíðarsöluhagnaður rennur til dýravelferðarmála eða dýrahjálpar

9. Ósóttar vörur

Vörur sem ekki eru sóttar innan 7 daga frá lokum sölutímabils teljast gefnar áfram í hringrásarkerfi Dýraloppunnar.

Dýraloppan getur þá:
- gefið vörurnar áfram
- selt þær til styrktar dýravelferð
- ráðstafað þeim eftir mati starfsfólks

10. Útborgun söluandvirðis

Greitt er út með millifærslu næstu mánaðarmót eftir að vara selst.

Seljandi ber ábyrgð á að veita réttar bankaupplýsingar.

11. Ábyrgð seljanda

Seljandi staðfestir að:
- hann sé réttmætur eigandi vörunnar
- varan sé löglega fengin
- upplýsingar um vöruna séu réttar eftir bestu vitund
Seljandi staðfestir einnig að vara hafi verið hreinsuð fyrir afhendingu og sé laus við sníkjudýr, myglu, þvaglykt og önnur óhreinindi sem geta haft áhrif á notagildi hennar.

Seljandi veitir Dýraloppunni heimild til að ljósmynda og birta myndir af vörum í markaðs- og söluskyni ásamt því að bæta við lýsingum eftir þörfum.

12. Ábyrgð Dýraloppunnar

Dýraloppan ber ekki ábyrgð á:
- eðlilegu sliti notaðra vara
- földum göllum
- tjóni sem kann að verða á vöru vegna eðlilegrar meðhöndlunar eða prófunar í verslun

Þó Dýraloppan fari vel með allar vörur ber fyrirtækið ekki ábyrgð á tjóni, þjófnaði, eldsvoða, vatnstjóni eða öðrum ófyrirséðum atvikum sem kunna að hafa áhrif á vörur í umboðssölu.