Skip to product information
1 of 3

Sensitive Duck & Potato 3kg

Sensitive Duck & Potato 3kg

Regular price 4.990 ISK
Regular price Sale price 4.990 ISK
Sale Sold out
Taxes included. Shipping calculated at checkout.

Fullorðinsfóður með andakjöti og kartöflum
Hentar hundum frá 12 mánaða aldri
Sérstaklega samsett með þarfir viðkvæmari hunda í huga
Eitt dýraprótín (önd)
Ríkt af fersku andarkjöti (30%)
Kornlaus uppskrift
Þurrkaður skelfiskur styður við liði og brjósk
Með mannanólígósakkaríðum og beta-glúkunum sem stuðla að heilbrigðri meltingarflóru og ónæmiskerfi

Bosch Sensitive Duck & Potato er heilfóður fyrir fullorðna hunda, sérstaklega hunda sem eru með fóðuróþol, ofnæmi eða eru viðkvæmir í maga. Fóðrið inniheldur ferskt andakjöt (30%) sem eina uppsprettu dýraprótíns (Single Animal Protein). Fóðrið hentar sérstaklega vel hundum sem þjást af óþoli eða ofnæmi fyrir ákveðnum innihaldsefnum sem geta valdið meltingar-, húð- eða feldvandamálum. Kartöflur (16%) eru notaðar sem aðaluppspretta kolvetna og henta oft vel fyrir hunda með ofnæmi eða óþol. Fóðrið er kornlaust og inniheldur fléttu trefja úr mannanólígósakkaríðum og beta-glúkunum sem styrkja meltingarflóru og náttúrulegt ónæmiskerfi hundsins. Sensitive Duck & Potato hentar því vel mörgum hundum með fóðurof́næmi eða aðra fóðurviðkvæmni. Hægt er að gefa fóðrið þurrt eða bleytt.

Nánari Lýsing

Innihald

Andakjöt (ferskt, 30%), þurrkaðar kartöflur (28%), þurrkað andarprótín (15%), kartöflumjöl, þurrkaðar rófur (afsykraðar), hörfræ, vatnsrofið prótín (úr anda), þurrkaðar baunir, þurrkað ger (inniheldur 0,1% mannanólígósakkaríð og 0,06% beta-glúkana), sellulósi, salt, kalíum, þurrkaðar þangþörungar, þurrkuð sikóríurót, glúkósamín, kondróítínsúlfat.

Næringargildi

Prótín 21,5%, fita 12,5%, trefjar 3,0%, hráaska (steinefni) 6,1%, fosfór 0,70%, kalk 1,1%, salt 0,30%, kalíum 0,60%, magnesíum 0,08%, 370 kcal/100g.

A-vítamín 12.000 IU, D3-vítamín 1.200 IU, B1-vítamín 10 mg, B2-vítamín 12 mg, B6-vítamín 7 mg, B12-vítamín 70 mcg, bíótín (B7-vítamín) 250 mcg, pantótensýra (B5-vítamín) 30 mg, níasín (B3-vítamín) 40 mg, fólínsýra (B9-vítamín) 1,0 mg, C-vítamín 70 mg, kólín (B4-vítamín) 1.800 mg, E-vítamín 70 mg.

Sink 75 mg, kopar 10 mg, mangan 11 mg, joð 2,0 mg, selen 0,2 mg, sinkoxíð 70 mg, járn 160 mg. Viðbætt andoxunarefni.

View full details