Fara í vöruupplýsingar
1 af 11

Sport beisli XL Sand

Sport beisli XL Sand

Almennt verð 11,990 ISK
Almennt verð Söluverð 11,990 ISK
Tilboð Væntanlegt
Verð með skatti. Sendingarkostnaður reiknaður við greiðslu.

Bólstrað beisli
Stillanlegt
Með endurskini
Hægt að krækja á bringu og baki
Smart ID tag

Stillanlegt og bólstrað neoprene beisli úr Matrix 2.0 línunni frá Max & Molly. Beislið er bæði fyrir hversdags göngutúra en hentar líka í meira krefjandi hreyfingu. Beislinu er ætlað að dreifa vel álagi yfir líkama hundsins og er sérstaklega hannað með líkamsbyggingu og hreyfingar hundsins í huga. Handfang er á baki beislisins til að grípa í ef þarf. 
Hægt er að stilla beislið um háls, bringu og maga sem gerir það að góðum kosti fyrir hunda í öllum stærðum og gerðum.
Auka D hringur er framan á beislinu til að draga úr togi og hentar beislið vel fyrir þá hunda sem toga of mikið í göngutúr.
Stærðartöflu má skoða í myndum og einnig má koma í verslun og máta. Hægt er að fá hálsólar og tauma í sama lit. Einnig hægt að fá í fleiri stærðum.

Smart ID tag merkin eru á öllum Matrix 2.0 beislum frá Max & Molly. Merkið er með skannanlegum QR kóða sem sendir þig beint á upplýsingasíðu hundsins. Ekki þarf að hlaða merkið og er Gotcha! appið frítt. Þú færð tilkynningu í appið ef einhver skannar merki hundsins og með tengingu við Google maps færðu staðsetningu skönnunar.

Skoða nánar